Öll hjálp

Áskriftin þín

Hvað fylgir rPOS Áskrift, hvernig sölutæki teljast og hvenær Stórnotendasamningur hentar.

rPOS Áskrift

rPOS Áskrift er ein áskrift með öllum eiginleikum kerfisins — engin þrep og engar læstar leiðir.

Hvað fylgir

  • Allir eiginleikar: sala, vörur, afslættir, gjafabréf, lager- og birgðakerfi, reikningsviðskipti, skýrslur og allar samþættingar
  • Ótakmarkaðar sölufærslur og starfsstöðvar
  • 1 sölutæki innifalið

Sölutæki

Tæki sem afgreiðir sölur telst sölutæki. Fyrsta sölutækið er innifalið í áskriftinni; hvert sölutæki umfram það kostar 7.500 kr/mán (án vsk).

  • Tæki telst aðeins með í mánuði sem það klárar a.m.k. 5 sölur — varakassi sem ekki er notaður kostar ekkert
  • Netsölur (t.d. Shopify) telja ekki sem sölutæki
  • Rukkað er eftir á, miðað við raunverulega notkun í liðnum mánuði

Verð: 9.900 kr/mán (án vsk). Mánaðarleg áskrift, án bindingar.

Stórnotendur

Stórnotendur er sérlausn fyrir keðjur, hótel og rekstur með sérþarfir.

Hvað fylgir (umfram rPOS Áskrift)

  • Sérsniðin uppsetning
  • Sérstakar samþættingar
  • Eigin tengiliður
  • SLA-samningur um þjónustustig
  • On-premise valkostir

Verð

Verð er sniðið að umfangi og þörfum. Hafðu samband við söluteymið okkar svo við getum sett saman lausn sem passar rekstrinum.